Áframhaldandi samstarf við Vestmannaeyjabæ

Það veitir okkur mikla ánægju að tilkynna að Janus heilsuefling og Vestmannaeyjabær hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf á verkefninu Fjölþætt heilsuefling 65+.

Verkefnið er hefur verið starfrækt í Vestmannaeyjum í fjögur ár, með góðum árangri. Markmið verkefnisins er að bæta lífsgæði eldri aldurshópa og huga að heilsutengdum forvörnum.

Í ágúst verður kynning á verkefninu fyrir nýja þátttakendur en sú dagsetning verður nánar auglýst síðar.

Heilsupistill.pdf

Hlaða niður

Fleiri fréttir