Fara í efni
Til baka
Frétt27. nóvember 2023

Janus heilsuefling og MS

MS og Janus heilsuefling undirrituðu sérstakan samstarfssamning til að efla heilsu 60 ára og eldri.

Janus heilsuefling
Janus heilsuefling og MS

MS og Janus heilsuefling undirrituðu á dögunum sérstakan samstarfssamning með það að markmiði að efla heilsu 60 ára og eldri en MS hefur um nokkurra ára skeið stutt við verkefnið með vörustyrkjum. Hleðsla og Næring+ eru meðal þeirra vara sem við mælum sérstaklega með fyrir þennan hóp, enda um prótein- og næringarríkar vörur að ræða sem henta hópnum vel.

Það var glatt á hjalli þegar Janus Guðlaugsson og Björn S. Gunnarsson hittust á dögunum til að undirrita samninginn og er gaman að segja frá því að stuðningur MS hefur átt sinn þátt í að efla heilsu og auka lífsgæði hjá stórum hópi fólks en á hverju ári nýta að meðaltali 700 skjólstæðingar okkar þjónustu.