Fara í efni

Taktu heilsuna í eigin hendur

Við sameinum styrktar- og þolþjálfun með einstaklingsmiðuðum þjálfunaraðferðum og fræðslu til að styðja þig í átt að bættri heilsu og auknum lífsgæðum - byggt á áralangri reynslu, gagnreyndum aðferðum og mælanlegum árangri.

Hámarkaðu lífsgæði – Sterk heilsa inn í framtíðina

Sérsniðnar vellíðunaráætlanir sem henta persónulegum heilsuþörfum og markmiðum. Hönnuð fyrir einstaklinga 60 ára og eldri.

Áhersla á heildræna vellíðan sem sameinar líkamlega heilsu, andlega vellíðan og félagslega þátttöku.

Sjá nánar
Heilsuefling
Bætiefni

Virkjaðu innri kraft með vísindalega rannsökuðum fæðubótarefnum

Fæðubótarefni JHP+ eru sérvalin af nákvæmni til að styðja við þína heilsuvegferð.

Sjá nánar

Taktu þátt í jómfrúarferð Janusar heilsueflingu

Fyrsta heilsuferðin erlendis sem sameinar hreyfingu, vellíðan og félagsskap í rólegu og hlýlegu umhverfi.

Sjá nánar
Heilsuferð

Árangursríkt samstarf við sveitarfélög

Janus heilsuefling hefur unnið með sveitarfélögum um allt land frá árinu 2017 með markvissum og vísindalegum úrræðum sem stuðlað hafa að bættri heilsu, aukinni líkamlegri og félagslegri virkni, bættum félagslegum tengslum auk þess sem bættur heilsutengdur ávinningur dregur úr kostnaðarsamri þjónustu til lengri tíma.

Sérsniðin úrræði

Við hönnum heilsueflandi úrræði sem taka mið af markmiðum og aðstæðum hvers sveitarfélags með áherslu á virkni, vellíðan og sjálfstæði íbúa.

Virk þátttaka samfélagsins

Við virkjum samfélagið með persónulegri nálgun sem hefur jákvæð áhrif á andlega og félagslega heilsu. Við vinnum gjarnan í nánu samstarfi við þá aðila sem þegar sinna heilsurækt í sveitarfélaginu auk þess sem við styðjum við þá með okkar sérfræðiþekkingu, fræðsluerindum og kerfisbundnum mælingum.

Samstarf við sveitarfélög

Mælanleg áhrif

Við leggjum áherslu á að árangur þátttakenda sé bæði mælanlegur og sýnilegur þar sem gengið er út frá viðurkenndum aðferðum. Þannig verður þróunin skýr og sveitarfélagið getur byggt upp heilsueflandi þjónustu sem skilar raunverulegum áhrifum á heilsu og vellíðan í samfélaginu.

Lýðheilsa sem fjárfesting

Heilsueflandi úrræði draga úr þjónustuþörf og álagi á heilbrigðiskerfið til lengri tíma. Auk þess stuðla þau að bættri líðan og meiri virkni, sem skilar sér í samfélagslegum ávinningi og sparnaði.

Slástu í lið með framúrstefnulegum sveitarfélögum!

FjarðabyggðReykjanesbærGarðabærHafnarfjörðurVestmannaeyjarBorgarbyggðGrindavíkÞingeyjarsveit

Sérstakar þarfir eða nýjar hugmyndir?

Við tökum vel á móti öllum hugmyndum – hvort sem þú ert með sérstakt verkefni í huga, aðrar áherslur eða einfaldlega spurningu. Hafðu samband og ræðum málin.