Fara í efni

Bættu lífaldurinn þinn um allt að 7 ár hjá Janusi heilsueflingu

Janus heilsuefling vinnur með sérsniðna æfingaáætlun fyrir eldra fólk sem vill efla styrk sinn, þol og lífsgæði — byggt á vísindalegum aðferðum úr doktorsrannsókn stofnandans.

Þín heilsa. Þitt líf. Þín ákvörðun.

94%
Meðaleinkunn þátttakenda
98%
Þjónusta
Góð eða mjög góð
Þjónustukönnun 2025 · 397 svör

Þín heilsa. Þitt líf. Þín ákvörðun.

Við sameinum vísindalega þjónustu og árangursríkstengda nálgun til að efla þína heilsu á þínum forsendum.

Sérsniðin áætlun

Fáðu styrk- og þolþjálfun byggða á þínum eigin mælingum og markmiðum.

Heilsuapp og mælingar

Fáðu reglulegar mælingar og fylgstu með framvindu þinni í appinu.

Liðsheild og stuðningur

Í samvinnu við þátttakendur myndum við öflugt og hvetjandi liðsheild sem hjálpar þér að ná árangri.

Fagfólk sem fylgir þér eftir

Þjálfarar með háskólamenntun og mikla reynslu styðja þig að settum markmiðum.

Þjálfun hjá Janus heilsueflingu

Hver er ávinningur fjölþættrar heilsueflingar?

Ávinningur fjölþættrar heilsueflingar er margþættur. Niðurstöður sýna meðal annars fram á aukinn vöðvastyrk, betra úthald, bætta líkamssamsetningu og hærra mat á eigin heilsu.

  • Aukin lífsgæði
  • Meiri styrkur, þol og lífsorka
  • Bætt hreyfigeta
  • Að geta dvalið lengur í sjálfstæðri búsetu
  • Jákvæð breyting á líkamlegri og andlegri líðan
  • Hægir á öldrunarferlinu (m.a. með uppbyggingu vöðvamassa)
  • Dregur úr efnaskiptavillu; áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma

Starfsmenn Janusar heilsueflingar gera ítarlegar mælingar á stöðu þinni áður en þjálfun hefst.

Allt okkar starf byggir á gagnaöflun og mælanlegum árangri. Áður en þjálfun hefst eru gerðar ítarlegar heilsutengdar mælingar m.a. á hreyfifærni, þoli og styrk auk heilsutendra lífsgæða. Með því reynum við að tryggja að hver og einn fái aðstoð og verkefni við hæfi sem skilar raunverulegum árangri.

Rannsóknaniðurstöður sýna meðal annars að þátttakendur bæta að meðaltal mat á eigin heilsu úr 72 stigum í 87 stig yfir tveggja ára tímabil. Það eru um 20% framfarir. Þeir sem eru hvað verst staddir í upphafi ná gjarnan mestum framförum.

0%

af 100 mögulegum stigum er meðaltalið af eigin mati þátttakenda á heilsu sinni eftir tveggja ára tímabil

0%

Allir okkar þátttakendur hafa sýnt framfarir í lykilmælingum eins og styrk, göngugetu og lífsgæðum. Það eru niðurstöður frá OECD úr gagnagrunni Janusar heilsueflingar.

Heilsumælingar

Svona virkar ferlið

Hjá Janusi heilsueflingu mætum við þér eins og þú ert á þig kominn í dag. Við hjálpum þér að komast þangað sem þú vilt. Æfingarkerfið byggir á áralöngu rannsóknarferli og er þróað þannig að þú finnir fyrir framförum og aukinni vellíðan frá fyrsta degi.

Við byrjum á mælingum

Við byrjum á ítarlegum mælingum sem greina núverandi heilsufarsstöðu eins og jafnvægi, styrk, liðleika, þol og líðan. Mælingarnar gefa þér og okkur góða yfirsýn yfir heilsufarsstöðu þína og út frá því byggjum við upp þína þjálfun.

Sérsníðum áætlun sem hentar þér

Út frá niðurstöðum mælinga færðu sérsniðna æfingaáætlun sem tekur mið af markmiðum þínum, styrkleikum og veikleikum. Áætlunin inniheldur jafnvægi milli styrktar, þol- og liðleikaþjálfunar, með sérstakri áherslu á að bæta lífsgæði og auka heilsutengda sjálfbærni í daglegu lífi.

Þú færð aðgang að reynslumiklu fagfólki

Þjálfunin fer fram undir handleiðslu reyndra og vel menntaðra þjálfara sem fylgjast með framvindu þinni, veita þér hvatningu og stuðning auk þess sem þeir aðlaga æfingar eftir þörfum og getu hverju sinni.

Við náum fram mælanlegum árangri

Með reglulegum mælingum, skráningu í heilsuappið og samtölum við þjálfara tryggjum við framfarir, eftirfylgni og raunverulegan árangur. Þú bæði sérð og finnur hvernig þú ert að bæta þig.

Hvað segja þátttakendur okkar

Upplifun þátttakenda af því hvernig Janus heilsuefling hefur hjálpað þeim og bætt lífsgæði

  • “Það er svo gaman að mæta á æfingu. Mér finnst frábært að það er alltaf þjálfari á staðnum, sem er duglegur að leiðbeina og benda á æfingar sem gætu hentað betur fyrir hvern og einn. Æfingarnar eru í aðgengilegu appi og miða að því að styrkja allan líkamann, auka liðleika og jafnvægi. Einnig er þetta frábær félagsskapur.”

    EB
    Elín Borg Melsted
  • “Janus heilsuefling er einstakur vettvangur fyrir einstaklinga sem vilja styrkja heilsu sína á heildrænan hátt. Þar mætast fagmennska, hlýja og einstaklingsmiðuð nálgun sem gerir það að verkum að maður finnur sig öruggan og hvattan til að ná markmiðum sínum. Starfsfólkið er bæði frótt og innilegt og leggur metnað í að finna lausnir sem henta hverjum og einum. Ég mæli eindregið með Janusi heilsueflingu fyrir þá sem vilja bæta líðan sína, orku og lífsgæði.”

    Einar Magnússon
    Einar Magnússon
  • “Þátttaka mín í verkefninu hefur aukið lífsgæði mín. Mér líður betur andlega og líkamlega. Mér finnst leiðsögnin og stuðningurinn frá þjálfurum góður.”

    Bryndís Guðmundsdóttir
    Bryndís Guðmundsdóttir
  • “Eftir að ég byrjaði hjá Janusi heilsueflingu hef ég fundið fyrir auknu úthaldi og betri svefni. Ég hef bætt við mig vöðvamassa og mittismálið minnkað. Einnig er félagsskapurinn frábær.”

    Skúli Gunnar Böðvarsson
    Skúli Gunnar Böðvarsson
  • Byrjaðu strax.

    “Byrjaði fyrir u.þ.b. þremur árum og veit ekki hvar ég væri staddur ef ég hefði ekki haft þetta prógram. Á þessum tíma er ég búinn að ganga í gegnum mjaðmaskipti, lærbrot og endurtekna viðgerð á lærbroti en hef náð ótrúlegum styrk í gegnum þetta kerfi. Flottir þjálfarar, góður félagsskapur og eftirfylgni góð.”

    ÞJ
    Þorvaldur JónssonBorgarbyggð
  • Með hækkandi aldri verður góð heilsa ekki metin til fjár.

    “Miklu betri líðan. Bæði líkamlega og ekki síður andlega. Aukinn styrkur, aukið þol og vöðvabólgan á bak og burt. Svo er það ekki síður mikils um vert að eiga gott samfélag með þjálfunarfélögum sínum.”

    LJ
    Laufey JóhannsdóttirGarðabær/Álftanes
  • Láttu vaða, þú sérð ekki eftir því.

    “Orkan er að koma, jafnvægið er smátt og smátt að aukast, úthaldið er farið að verða betra, félagsskapurinn er frábær. Þjálfarinn er meiriháttar.”

    Ingibjörg Fríða Ragnarsdóttir
    Ingibjörg Fríða RagnarsdóttirFjarðabyggð
  • Byrjaðu strax í gær.

    “Betri svefn, meiri orka. Ég er búin að léttast og fá pínu meira sjálfstraust. Mér finnst appið og þjálfarinn 100%.”

    Elizabeth Goodall Alexandersdóttir
    Elizabeth Goodall AlexandersdóttirBorgarbyggð
  • Mæli 100% með þessu.

    “Aukinn styrkur, fækkun kílóa og betri líðan. Appið er algjör snilld, maður ræður betur hraðanum sem maður fer í gegnum æfingarnar. Eins er hægt að fara á öðrum tíma ef eitthvað kemur upp á á hefðbundnum æfingartíma. Þjálfararnir eru ótrúlega jákvæðir og hvetjandi.”

    TJ
    Tryggvi JónssonReykjavík
  • Ef þú vilt efla þol og styrk þá skaltu skrá þig sem fyrst.

    “Miklu sterkari og meira þol, fer létt með að ganga á Helgafell og Búrfell.”

    RB
    Rúnar BjörnssonGarðabær/Álftanes
  • “Meiri orka og líður betur í skrokknum og frábær félagsskapur. Frábær þjálfari og skemmtilegur hópur.”

    GK
    Guðbjörg KarlsdóttirVestmannaeyjar
  • “Meiri orka, sjálfstraust og góðir félagar. Þetta er að verða ávanabindandi.”

    SG
    Steinunn GarðarsdóttirBorgarbyggð
  • “Ómissandi. Gefur okkur betri lífsgæði að öllu leyti, líkamlega sem andlega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Þessar æfingar hafa breytt allri líðan minni til hins betra.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Styrkur minn hefur aukist, ég er ánægðari með minn líkama og vona að þessi þjónusta verði um alla framtíð.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Ég hvet allt eldra fólk að nýta sér þessa frábæru þjónustu sem sannarlega hefur virkað vel fyrir mig.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mjög ánægð bæði hvað varðar aukinn styrk og úthald og ekki síður félagslega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Allt gott við þetta, ekki síst andlega hliðin!”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mæli eindregið með þessari þjálfun fyrir aldraða.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025

Skráðu þig í þjálfun

Í sumum tilvikum taka sveitarfélög eða stéttarfélög þátt í kostnaði og niðurgreiða heilsueflingu fyrir íbúa sína eða skjólstæðinga. Við hvetjum þátttakendur til að skuldbinda sig að lágmarki í 6 til 12 mánuði til þess að sjá mælanlegar framfarir.

Fjarþjálfun

Mánaðarleg áskrift

14.900 kr.
á mánuði
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Við komum þér af stað með þjálfara*
  • Regluleg samskipti við þjálfara sem fylgist með árangri og þjálfun
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á ári
  • Aðgangur að heilsuappi
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að þjálfara með tölvupósti
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig

Staðþjálfun

Engin binding

27.900 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig

Staðþjálfun

6 mán. binding

24.900 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig
Vinsælast

Staðþjálfun

12 mán. binding

19.900 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig

*Gildir á æfingastöðum okkar. Utan æfingastaða fer þjálfunin fram á netinu.

Algengar spurningar

Vilt þú byrja?

Byrjaðu strax og leyfðu heilsunni ekki að sitja á hakanum. Við veitum þér stuðning, faglega þjálfun og aðferðir sem virka. Við tökum þér fagnandi.

Skráning í Janus heilsueflingu