Fara í efni
Heilsuferð

Heilsuferð

Janus heilsuefling vinnur nú að því að setja saman einstaka heilsuferð - vel skipulagða ferð sem endurnærir líkama og sál.

Hefur þú áhuga á að koma með okkur í ferð?

Janus heilsuefling undirbýr nú sína fyrstu heilsuferð erlendis, sem stefnt er að verði farin snemma árs 2026. Markmiðið er að ferðin verði skemmtileg blanda af æfingum, gönguferðum, frábærum mat, félagslífi og útiveru í góðum félagsskap - allt skipulagt með vellíðan að leiðarljósi.

Göngu- og skoðunarferðir

Við munum bjóða upp á léttar göngu- eða skoðunarferðir þar sem áhersla er lögð á útivist, hreyfingu og samveru í nýju umhverfi. Dagskráin verður fjölbreytt og sniðin að þátttakendum.

Hreyfing & Vellíðan

Jafnvægi milli hreyfingar og slökunar – með æfingum, gönguferðum, sundi, golfi og góðum stundum við sundlaugina.

Ný upplifun

Ferðin er tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, brjóta upp daglega rútínu og njóta þess að vera í nýju umhverfi með góðum hópi fólks.

Góður félagsskapur

Við leggjum áherslu á hlýlegt og uppbyggilegt andrúmsloft þar sem auðvelt er að tengjast öðrum sem hafa áhuga á heilsu og vellíðan.

Heilsuferð

Algengar spurningar