Fara í efni
Heilsuefling 60+ í Fjarðabyggð

Janus heilsuefling

Heilsuefling 60+ í Fjarðabyggð

Styrktar- og þolþjálfun undir handleiðslu þjálfara í öllum fimm byggðarkjörnum, Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.

94%
Meðaleinkunn þátttakenda
98%
Þjónusta
Góð eða mjög góð
Þjónustukönnun 2025 · 397 svör

Þjálfun sem skilar mælanlegum árangri

Byggt á vísindum

Þjálfunin byggir á doktorsrannsókn og áralangri reynslu, aðferð sem sannanlega virkar.

Mælanlegur árangur

Ítarlegar heilsufarsmælingar tvisvar á tímabilinu, þú sérð framfarirnar svart á hvítu.

Reyndir þjálfarar

Æft í litlum hópum undir handleiðslu reyndra þjálfara sem fylgjast með hverjum og einum.

Frá 8.950 kr./mán.

Fjarðabyggð niðurgreiðir þátttöku fyrir íbúa sveitarfélagsins, meira en 65% afsláttur af almennu verði.

0%

Af 100 mögulegum er meðaleinkunn þátttakenda í þjónustukönnun okkar 2025 · 397 svör

0%

Þátttakenda segja þjónustuna góða eða mjög góða í sömu könnun

0%

Af 100 mögulegum stigum er meðaltal af eigin mati þátttakenda á heilsu sinni eftir tveggja ára tímabil

5 æfingastöðvar

Líkamsræktin í sundlauginni — Neskaupstaður

Neskaupstaður

Líkamsræktin í sundlauginni

Líkamsræktin í sundlauginni — Eskifjörður

Eskifjörður

Líkamsræktin í sundlauginni

Eyrin — Reyðarfjörður

Reyðarfjörður

Eyrin

Íþróttahúsið — Fáskrúðsfjörður

Fáskrúðsfjörður

Íþróttahúsið

Íþróttahúsið — Stöðvarfjörður

Stöðvarfjörður

Íþróttahúsið

Hvað kostar þetta?

Fjarðabyggð er í samstarfi við Janus heilsueflingu og niðurgreiðir þátttöku fyrir íbúa sveitarfélagsins.

Engin binding

27.900 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig
−59%

6 mán. binding

24.900 kr.
10.250 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig
−55%

12 mán. binding

19.900 kr.
8.950 kr.
á mánuði
  • Aðgangur að líkams- og heilsuræktarstöð
  • Einstaklingsmiðuð, áhrifarík og vísindalega uppbyggð æfingaáætlun
  • Styrktarþjálfun með þjálfara 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Reglulegar göngur og aðrar heilsutengdar uppákomur
  • Ítarleg heilsufarsmæling 2x á tímabilinu
  • Aðgangur að heilsuappi fyrir samskipti og til að halda utan um mælingar
  • Rafræn fræðsluerindi frá sérfræðingum
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
Skrá mig

Hvað segja þátttakendur?

Upplifun þátttakenda af því hvernig Janus heilsuefling hefur hjálpað þeim og bætt lífsgæði

  • “Það er svo gaman að mæta á æfingu. Mér finnst frábært að það er alltaf þjálfari á staðnum, sem er duglegur að leiðbeina og benda á æfingar sem gætu hentað betur fyrir hvern og einn. Æfingarnar eru í aðgengilegu appi og miða að því að styrkja allan líkamann, auka liðleika og jafnvægi. Einnig er þetta frábær félagsskapur.”

    EB
    Elín Borg Melsted
  • “Janus heilsuefling er einstakur vettvangur fyrir einstaklinga sem vilja styrkja heilsu sína á heildrænan hátt. Þar mætast fagmennska, hlýja og einstaklingsmiðuð nálgun sem gerir það að verkum að maður finnur sig öruggan og hvattan til að ná markmiðum sínum. Starfsfólkið er bæði frótt og innilegt og leggur metnað í að finna lausnir sem henta hverjum og einum. Ég mæli eindregið með Janusi heilsueflingu fyrir þá sem vilja bæta líðan sína, orku og lífsgæði.”

    Einar Magnússon
    Einar Magnússon
  • “Þátttaka mín í verkefninu hefur aukið lífsgæði mín. Mér líður betur andlega og líkamlega. Mér finnst leiðsögnin og stuðningurinn frá þjálfurum góður.”

    Bryndís Guðmundsdóttir
    Bryndís Guðmundsdóttir
  • “Eftir að ég byrjaði hjá Janusi heilsueflingu hef ég fundið fyrir auknu úthaldi og betri svefni. Ég hef bætt við mig vöðvamassa og mittismálið minnkað. Einnig er félagsskapurinn frábær.”

    Skúli Gunnar Böðvarsson
    Skúli Gunnar Böðvarsson
  • Byrjaðu strax.

    “Byrjaði fyrir u.þ.b. þremur árum og veit ekki hvar ég væri staddur ef ég hefði ekki haft þetta prógram. Á þessum tíma er ég búinn að ganga í gegnum mjaðmaskipti, lærbrot og endurtekna viðgerð á lærbroti en hef náð ótrúlegum styrk í gegnum þetta kerfi. Flottir þjálfarar, góður félagsskapur og eftirfylgni góð.”

    ÞJ
    Þorvaldur JónssonBorgarbyggð
  • Með hækkandi aldri verður góð heilsa ekki metin til fjár.

    “Miklu betri líðan. Bæði líkamlega og ekki síður andlega. Aukinn styrkur, aukið þol og vöðvabólgan á bak og burt. Svo er það ekki síður mikils um vert að eiga gott samfélag með þjálfunarfélögum sínum.”

    LJ
    Laufey JóhannsdóttirGarðabær/Álftanes
  • Láttu vaða, þú sérð ekki eftir því.

    “Orkan er að koma, jafnvægið er smátt og smátt að aukast, úthaldið er farið að verða betra, félagsskapurinn er frábær. Þjálfarinn er meiriháttar.”

    Ingibjörg Fríða Ragnarsdóttir
    Ingibjörg Fríða RagnarsdóttirFjarðabyggð
  • Byrjaðu strax í gær.

    “Betri svefn, meiri orka. Ég er búin að léttast og fá pínu meira sjálfstraust. Mér finnst appið og þjálfarinn 100%.”

    Elizabeth Goodall Alexandersdóttir
    Elizabeth Goodall AlexandersdóttirBorgarbyggð
  • Mæli 100% með þessu.

    “Aukinn styrkur, fækkun kílóa og betri líðan. Appið er algjör snilld, maður ræður betur hraðanum sem maður fer í gegnum æfingarnar. Eins er hægt að fara á öðrum tíma ef eitthvað kemur upp á á hefðbundnum æfingartíma. Þjálfararnir eru ótrúlega jákvæðir og hvetjandi.”

    TJ
    Tryggvi JónssonReykjavík
  • Ef þú vilt efla þol og styrk þá skaltu skrá þig sem fyrst.

    “Miklu sterkari og meira þol, fer létt með að ganga á Helgafell og Búrfell.”

    RB
    Rúnar BjörnssonGarðabær/Álftanes
  • “Meiri orka og líður betur í skrokknum og frábær félagsskapur. Frábær þjálfari og skemmtilegur hópur.”

    GK
    Guðbjörg KarlsdóttirVestmannaeyjar
  • “Meiri orka, sjálfstraust og góðir félagar. Þetta er að verða ávanabindandi.”

    SG
    Steinunn GarðarsdóttirBorgarbyggð
  • “Ómissandi. Gefur okkur betri lífsgæði að öllu leyti, líkamlega sem andlega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Þessar æfingar hafa breytt allri líðan minni til hins betra.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Styrkur minn hefur aukist, ég er ánægðari með minn líkama og vona að þessi þjónusta verði um alla framtíð.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Ég hvet allt eldra fólk að nýta sér þessa frábæru þjónustu sem sannarlega hefur virkað vel fyrir mig.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mjög ánægð bæði hvað varðar aukinn styrk og úthald og ekki síður félagslega.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Allt gott við þetta, ekki síst andlega hliðin!”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025
  • “Mæli eindregið með þessari þjálfun fyrir aldraða.”

    Þ
    ÞátttakandiÞjónustukönnun 2025

Árangursríkt samstarf við innlend og alþjóðleg samtök

Landlæknir Íslands
OECD
CHRODIS+

Taktu fyrsta skrefið

Skráningin tekur innan við tvær mínútur — þú velur stað og tíma sem henta þér og þjálfari tekur svo á móti þér. Þú getur líka hringt í okkur í síma 546 1232.