Fara í efni
Til baka
Heilsupistill28. janúar 2022

Svefn og heilsa

Þessi pistill er unninn upp úr metsölubókinni Þess vegna sofum við eftir Matthew Walker, prófessor í taugavísindum og sálfræði.

Janus heilsuefling
Svefn og heilsa

STÓRKOSTLEG UPPGÖTVUN

„Vísindamenn hafa uppgötvað byltingakennda nýja meðferð sem lengir líf okkar. Hún styrkir minnið og sköpunarkraftinn. Hún gerir okkur meira aðlaðandi. Hún heldur okkur grönnum og dregur úr matarlöngun. Hún ver okkur gegn krabbameini og vitglöpum og hjartaáfalli og heilablóðfalli, svo að ekki sé minnst á sykursýki. Hún gerir okkur jafnvel hamingjusamari, síður þunglynd og kvíðin. Hvernig líst þér á?"

Svefn og heilsa

ÁVINNINGUR AF GÓÐUM SVEFNI

Ávinningur af góðum svefni er margvíslegur. Hann styrkir margs konar heilastarfsemi, þar á meðal hæfileika okkar til að læra, að muna, að taka rökréttar ákvarðanir og velja rétt. Svefninn stuðlar að sálarheill og andlegri vellíðan. Hann fínstillir tilfinningarásir heilans og gerir okkur kleift að mæta félagslegum og sálfræðilegum áskorunum næsta dags með stillingu og yfirvegun.