Fara í efni
Til baka
Frétt17. nóvember 2023

Fjölþætt heilsuefling 60+ í Borgarbyggð

Samstarfssamningur undirritaður við Borgarbyggð um tveggja ára markvissa heilsueflingu.

Janus heilsuefling
Fjölþætt heilsuefling 60+ í Borgarbyggð

Þann 16. október sl. var undirritaður samstarfssamningur við Borgarbyggð.

Með samningnum verður þátttakendum, 60 ára og eldri með lögheimili í Borgarbyggð, boðið upp á tveggja ára markvissa heilsueflingu með það að markmiði að bæta heilsutengdar forvarnir, efla hreyfifærni þátttakenda, bæta afkastagetu, heilsu og lífsgæði þeirra sem taka þátt.

Af því tilefni verður haldinn kynningarfundur þann 30. nóvember nk. í Hjálmakletti kl. 17:00 og eru allir sem hafa áhuga á verkefninu velkomnir að mæta á fundinn.

Skráning á þátttöku í verkefninu má senda á skraning@janusheilsuefling.is.

Fullt nafn, kennitala, símanúmer og netfang má fylgja með skráningunni.

Fjölþætt heilsuefling 60+ í Borgarbyggð