Þér er boðið á kynningarfund í Reykjanesbæ
Mánudaginn 7. mars fer fram kynningarfundur á verkefninu fjölþætt heilsuefling 65+ í Reykjanesbæ. Hafir þú náð 65 ára aldri og ert með lögheimili í Reykjanesbæ er þér velkomið að mæta og kynna þér verkefnið.
Kynningin fer fram í Íþróttaakademíunni klukkan 16:00.
Hafir þú áhuga á að taka þátt í verkefninu en kemst ekki á kynningarfundinn, getur þú skráð þátttöku þína á slóðinni hér að neðan.
www.janusheilsuefling.is/skraning
Hópurinn sem verður nú tekinn inn í verkefnið verður sá síðasti að þessu sinni þar sem gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki formlega í Reykjanesbæ í september 2023.
Verkefnið Fjölþætt heilsuefling inniheldur meðal annars:
- Aðgangur að Sporthúsinu Reykjanesbæ
- Styrktarþjálfun í líkamsræktarstöð 2x í viku með leiðsögn þjálfara
- Þolþjálfun 1x í viku með leiðsögn þjálfara
- Reglulegir fyrirlestrar á sviði heilsu og velferðar frá sérfræðingum
- Ítarleg heilsufarsmæling á 6 mánaða fresti hjá Janusi heilsueflingu
- Mæling á 12 mánaða fresti á efnaskiptavillu, áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma
- Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur um heilsutengdan lífsstíl
- Aðgangur að lokuðum Facebook hópi með upplýsingum og fróðleik
- Aðgangur að heilsu-appi Janusar heilsueflingar og þjálfunaráætlanir til lengri tímaSmelltu á myndina með fréttinni til að stækka hana.